17. júní
Á þjóðhátíðardaginn 17 júni er að venju hátíðarguðsþjónusta í Dómkirkjunni. Að þessu sinni hefst hún kl. 10.15. Biskup Íslands Karl Sigurbjörnsson prédikar en sr. Anna Sigríður Pálsdóttir þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur undir stjórn Kára Þormars. Einnig syngur skólakór Kársnesskóla undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur eitt lag. Einsöng í athöfninni syngur Fjóla Kristín Niklulásdóttir. Að venju er útvarpað frá athöfninni.
Ástbjörn Egilsson, 14/6 2011 kl. 13.50