Dómkirkjan

 

Góð vika framundan í safnaðarstarfinu

Tíðasöngur þri-mið-og fimmtudag kl. 9. 15 og kl. 17.00 á fimmtudaginn. Bæna-og kyrrðarstund kl. 12.00 á þriðjudaginn. Skemmtileg og fræðandi stund með fermingarbörnunum á þriðjudaginn. Bach tónleikar Ólafs Elíassonar kl. 20.00 Á miðvikudaginn er örganga með séra Elínborgu Stuludóttir, hefst með hugleiðingu í kirkjunni klukkan 18.00. Á fimmtudaginn er Margrét Sigfúsdóttir gestur okkar í Opna húsinu kl. 13.00. Sunnudaginnn 6. október er messa klukkan 11.00 sr. Sveinn Valgeirsson prédikar.
Minnum á að Apparat Organ Quartet og Dómkórinn í Reykjavík verða með tónleika þann 11. október næstkomandi. Í rúma klukkustund frá klukkan 21.00 mun rafmagnaður hljóðheimur Apparatsins umlykja ómþýðan söng Dómkórsins.
Apparat Organ Quartet skipa þeir Hörður Bragason, Sighvatur Ómar Kristinsson og Úlfur Eldjárn sem leika á mis-rafmögnuð orgel og hljóðgervla, og Arnar Geir Ómarsson sem leikur á slagverk. Stjórnandi Dómkórsins er Guðmundur Sigurðsson.
Sjáumst í safnaðarstarfinu!

Laufey Böðvarsdóttir, 29/9 2024 kl. 11.34

     

    Kirkjustræti, 101 Reykjavík.. Sími 5209700 , fax 5209701 · Kerfi RSS