Vígslutónleikar nýja flygilsins á 230 ára afmæli Dómkirkjunnar, þriðjudaginn 17. mars kl. 21.00
Vígslutónleikar þar sem flygilinn verður í aðalhlutverki. Þennan hljómfagra flygil fékk Dómkirkjan að gjöf frá dásamlegum hjónum. Við eigum engin orð til að lýsa þakklæti okkar yfir þessarri höfðinglegu gjöf. En þakklætið kemur frá okkar dýpstu hjartarótum. Flytjendur á þriðjudagskvöldið eru: Dómkórinn, Guðný Charlotta Harðardóttir, Kitty Kovács, Matthías Harðarson, Ólafur Elíasson og Vera Hjördís Matsdóttir. Eftir vígslutónleikana er boðið uppá kaffi og kransakökubita frá Bernhöftsbakarí. Verið hjartanlega velkomin!
Laufey Böðvarsdóttir, 12/3 2026 kl. 19.30