Góð vika framundan! Laudes – morgunsöngur – kl 9:15 á þriðjudögum miðvikudögum og fimnmtudögum og vepser verður sunginn á fimmtudögum kl 17:00. Allir söngvinir hjartanlega velkomnir, hvort heldur til að taka þátt í söngnum og bænagjörðinni eða sitja og hlusta.
Bæna-og kyrrðarstund í hádeginu á klukkan 12.00 á morgun, þriðjudag. Eftir stundina er gott samfélag í safnaðarheimilinu, María Kristín Jónsdóttir ætlar að leika fyrir okkur á píanóið. Bach tónleikar öll þriðjudagskvöld klukkan 20.00-20.30. Barokk fyrir skilding – á slóðum norrænnar barokktónlistar. Tónleikar föstudaginn 27. febrúar klukkan 20.00 Norski tónlistarhópurinn Bislet Barokk og íslenska tónlistarkonan Aurora Rósudóttir Luciano spila og spjalla um norrænar skildingsvísur frá barokktímabilinu. Slíkar vísur voru eins konar fjölmiðlar síns tíma, sem dreifðu fréttum og frásögnum frá því víða um heim langar leiðir – jafnvel alla leið til Íslands. Með barokkhljóðfæri, langspil, spuna og frásagnargleði í fyrirrúmi er útkoman er leikræn tónlistarupplifun. Almennt miðaverð er 3.000 kr. og 2.000 kr. fyrir nemendur. Ókeypis fyrir börn yngri en 12 ára og fylgdarfólk fatlaðra. Verið hjartanlega velkomin.
Laufey Böðvarsdóttir, 23/2 2026 kl. 8.27