Barokk fyrir skilding – á slóðum norrænnar barokktónlistar
Norski tónlistarhópurinn Bislet Barokk og íslenska tónlistarkonan Aurora Rósudóttir Luciano spila og spjalla um norrænar skildingsvísur frá barokktímabilinu. Slíkar vísur voru eins konar fjölmiðlar síns tíma, sem dreifðu fréttum og frásögnum frá því víða um heim langar leiðir – jafnvel alla leið til Íslands. Með barokkhljóðfæri, langspil, spuna og frásagnargleði í fyrirrúmi er útkoman er leikræn tónlistarupplifun. Almennt miðaverð er 3.000 kr. og 2.000 kr. fyrir nemendur. Ókeypis fyrir börn yngri en 12 ára og fylgdarfólk fatlaðra.
Laufey Böðvarsdóttir, 11/2 2026 kl. 14.33
