Dr. Einar Sigurbjörnsson prófessor, á Prestastefnu 2011.
Dagskrá í tali og tónum til heiðurs dr. Einari Sigurbjörnssyni prófessor verður í Fella- og Hólakirkju fimmtudaginn 18. september 2014, kl. 17:30–19:00. Að dagskrá lokinni verða veitingar í safnaðarheimili Fella- og Hólakirkju í boði Guðfræðistofnunar og Guðfræði– og trúarbragðafræðideildar Háskóla Íslands.
Allir sem heiðra vilja dr. Einar Sigurbjörnsson í tilefni af 70 ára afmæli hans eru hjartanlega velkomnir.
Næstkomandi sunnudag, 7. september hefst sunnudagaskólinn kl. 11 í Dómkirkjunni. Æskulýðsleiðtogarnir okkar þeir Óli Jón og Siggi Jón sjá um fræðslu og skemmtun fyrir börnin á kirkjuloftinu.
Bæna-og kyrrðarstund í dag, þriðjudag. Léttur hádegisverður í safnaðarheimilinu að bænastund lokinni. Við höfum í nokkur skipti fengið góða sjálfboðaliða til að matreiða. Þær Ásta, Katrín og Jóna Matthildur hafa komið og í dag er það Ólöf Sesselja sem eldar eitthvað gott handa þessum trúfasta bænahóp. Allir eru velkomnir og fyrirbænir má hringja inn í síma 520-9700. Þökkum sjálfboðaliðunum okkar fyrir þeirra góðu hjálp.
Kveðjumessa séra Önnu Sigríðar verður nk.sunnudag 31. ágúst kl 11. Dómkórinn og organisti er Kári Þormar. Messukaffi í safnaðarheimili Dómkirkjunnar við Vonarstræti. Verið hjartanlega velkomin.