Dómkirkjan

 

Hjónin í Annríki verða gestir okkar á prjónakvöldinu eftir viku.

Nú er vika í næsta prjónakvöld, en það verður mánudagskvöldið 27. október. Það byrjar kl. 19 og við fáum hjónin í Annríki þau; Ásmund, gullsmið og Guðrúnu Hildi, klæðskera og kjólameistara. Þau sérhæfa sig í öllu sem viðkemur gerð íslenskra búninga, saumi, smíði, lagfærðingum ásamt þvi að kenna og fræða. Á prjónakvöldinu ætla þau að vera með tvo faldbúninga og handverk þeim tengdum. Það er gríðarlega fjölbreytt og ætti að höfða til þeirra sem eru áhugasamir um handverk almennt.

Laufey Böðvarsdóttir, 20/10 2014

Séra Karl Sigurbjörnsson, biskup prédikar og þjónar fyrir altari á sunnudaginn.

Séra Karl Sigurbjörnsson prédikar og þjónar fyrir altari á sunnudaginn.Dómkórinn syngur undir stjórn Kára Þormar dómorganista. Feðgarnir Magnús Geir og Kjartan lesa ritningarlestrana, en Magnús Geir mun fermast í vor.  Barnastarfið á kirkjuloftinu á sama tíma í umsjón, Ólafs Jóns og Sigga Jóns.  Fundur með fermingarbörnum og foreldrum/forráðamönnum  þeirra í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Hjartanlega velkomin.

Laufey Böðvarsdóttir, 17/10 2014

Það verður gaman að hittast í Opna húsinu á morgun, fimmtudag í safnaðarheimilinu við Vonarstræti kl. 13:30-15:30.Séra Karl Sigurbjörnsson, biskup verður gestur okkar. Þetta verður bæði fróðleg og skemmtileg stund. Gott með kaffinu, hjartanlega velkomin.

Laufey Böðvarsdóttir, 15/10 2014

Séra Hjálmar Jónsson er í námsleyfi um einsmánaðar skeið og mun séra Karl Sigurbjörnssn leysa hann af á meðan. Séra Karl byrjar á morgun og mun hann leiða bæna-og kyrrðarstundina í hádeginu sem byrjar kl. 12:10. Að henni lokinni er góð máltíð í safnaðarheimilinu sem Ásta og Katrín sjá um. Hlökkum til að sjá ykkur.

Laufey Böðvarsdóttir, 13/10 2014

Á aldahvörfum eftir sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson

Bókin: Dómkirkjan í Reykjavík III, Á aldahvörfum eftir sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson er komin úr prentun og er til sölu hjá Laufeyju í síma 520-9700. I Byggingasagan og II Í iðu þjóðlífs eftir sr. Þóri Stephensen fyrrum dómkirkjuprest komu út í einu bindi á 200 ára afmæli kirkjunnar 1996. Tíminn sem síðan er liðinn hefur verið mjög viðburðarríkur, framkvæmdir og breytingar hafa orðið sem nauðsynlegt var talið að gera skil.
Í þessarri bók er þó áherslan fyrst og fremst á starfinu í Dómkirkjunni og á vegum safnaðar hennar. Margt fólk hefur komið að þar við sögu og er sjálfsagt að hlut þess séu gerð skil, svo mjög sem allt það sem fram hefur farið hefur byggst á framlagi þess.
Dómkirkjan í Reykjavík III, Á aldahvörfum er  í pappírskilju, ríkulega prýdd myndum, eintakið kostar 5000 krónur.

Laufey Böðvarsdóttir, 13/10 2014

Frú Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands var gestur okkar á skemmtilegu kvöldi hjá Kirkjunefnd kvenna Dómkirkjunnar.

IMG_2148 IMG_2149 IMG_2150 IMG_2151 IMG_2152 IMG_2153 IMG_2156 IMG_2157 IMG_2158 IMG_2159 IMG_2160 IMG_2161 IMG_2162

Laufey Böðvarsdóttir, 13/10 2014

Frú Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands verður gestur okkar á fyrsta KKD fundi vetrarins nk. mánudag.

Kirkjunefnd kvenna Dómkirkjunnar heldur sinn fyrsta fund mánudaginn  13. október. Fundarkonur eru að koma í hús á milli 17 og 17:30.

Frú Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands verður gestur okkar.  Kirkjunefndin var stofnuð til þess að standa að prýði Dómkirkjunnar og vinna að líknarmálum.  Kirkjunefndin hittist mánaðarlega yfir vetrartímann. Á næsta ári fögnum við 85 ára afmæli KKD.

KKD konur ætla að mæta í bleiku eða með eitthvað bleikt í tilefni af árveknis- og fjáröflunarátakinu Bleiku slaufunni sem stendur yfir í október.

Laufey Böðvarsdóttir, 10/10 2014

Ólöf Sesselja, djáknakandidat var gestur okkar í dag í Opna húsinu, gaman að hlusta á hana og síðan var lagið tekið við undirleik séra Sveins. Næsta fimmtudag verður Karl, biskup með okkur og segir frá einhverju skemmtilegu. Næstkomandi sunnudag kl. 11 prédikar séra Sveinn Valgeirsson, Dómkórinn og Kári Þormar organisti. Skemmtilegt barnastarf á kirkjuloftinu á sama tíma í umsjón Ólafs Jóns og Sigurðar Jóns. Hjartanlega velkomin til messu.

IMG_0181

Laufey Böðvarsdóttir, 9/10 2014

Ólöf Sesselja, djáknakandidat verður gestur okkar í Opna húsinu á morgun, fimmtudag

Ólöf Sesselja verður gestur okkar í Opna húsinu á morgun, fimmtudag (13:30-15:30). Hún verður með upplestur og góðar veitingar með kaffinu. Allir velkomnir.

Laufey Böðvarsdóttir, 8/10 2014

Ungdóm í safnaðarheimilinu í kvöld

Kæru foreldrar og forráðamenn fermingarbarna.

Í kvöld fer Ungdóm-samveran að mestu leyti í undirbúning fyrir Landsmót. Það skiptir miklu máli að allir þeir sem ætla á Landsmót mæti því við ætlum að undirbúa atriði fyrir hæfileikakeppni sem verður á Landsmóti. Allir aðrir eru velkomnir að hjálpa til og við komum til með að gera fleira skemmtilegt saman.

Í kvöld er lokafrestur til að skila leyfisbréfi og 6000 kr. staðfestingargjaldi. ATH staðf.gjaldið gengur uppí mótsgjaldið.

Kær kveðja

Óli Jón og Siggi Jón

 

Laufey Böðvarsdóttir, 7/10 2014

Kirkjan er opin alla virka daga frá 10-14

Viðtalstímar presta eru í safnaðarheimilnu
Lækjargötu 14a,
þri-fös 11-12 og eftir samkomulagi.
Sími: 520-9700.

Skráning í fermingarfræðslu

Fimmtudagur

- 13.00- 14.30 Opna húsið í safnaðarheimilinu, samvera, fræðsla og gott með kaffinu. Yfir vetrarmánuðina.
Tíðasöngur kl. 17.00 yfir vetrarmánuðina.
21.00 AA fundur

Dagskrá ...