Árið 2004 stóð Dómkórinn í Reykjavík fyrir samkeppni um ný lög og ljóð til að nota við kirkjulegar hjónavígslur. Verðlaunuð voru tvö lög og ljóð og féllu atkvæði þannig að í fyrsta sæti var lag Magnúsar Kjartanssonar Hin eina sanna ást og ljóð Hjálmars Jónssonar, dómkirkjuprests, Nú leikur blær um lífsins vor varð hlutskarpast í ljóðsamkeppninni. Í öðru sæti var lag Heimis Sindrasonar Brúðkaupsbæn en ljóðahöfundurinn, Ari Harðarson, hlaut önnur verðlaun áheyrenda.
Öll börn eða unglingar á aldrinum 1-18 ára ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í Dómkirkjunni. Skoða: Barna og unglingavefinn.
Dómkórinn leiðir safnaðarsöng í messum og stendur fyrir Tónlistardögum Dómkirkjunnar á hverju hausti og tónleikum á jólum. Dómkórinn syngur að auki við ýmis tækifæri. Meira um Dómkórinn

