Kvöldkirkjan

Kvöldkirkjan er opnuð kl. 20 á fimmtudögum.

Hún er ætluð til þess að veita fólki skjól, athvarf og kyrrð. Hún skal vera farvegur til að nálgast Guð á nýjan hátt. Fólk kemur inn í kyrrð kirkjunnar til að eiga stund með sjálfu sér og Guði sínum. Fólk kemur og fer, stansar í 5 mínútur eða hálftíma, allt eftir eigin ósk og vilja.

Bænastund er kl. 20.30 og stutt guðsþjónusta kl. 21.30 Við púlt í kirkjunni er hægt að nema staðar og skrifa bænarefni sín sem svo eru flutt á bænastundinni. Við annað púlt er hægt að skrifa niður hugsanir sínar, gullkorn eða lífsmottó og deila þannig hugsun sinni með öðrum. Fyrirmyndina sækjum við til dönsku kirkjunnar.

Sjálfboðaliðar:
Til starfsins vantar okkur sjálfboðaliða. Verkefni þeirra: Að vera til staðar, taka þátt í helgistundum kvöldkirkjunnar, undirbúa kirkjuna með því að kveikja á kertum, taka til hressingu, taka á móti fólki, velja sálma.

Prestar og starfsfólk kirkjunnar, sóknarnefndarmenn og sjálfboðaliðar annast undirbúning og umsjón.

Þögn ríkir í kirkjunni alla jafna og myndataka er afbeðin.

Hjálmar Jónsson (hjalmar@domkirkjan.is)
Þorvaldur Víðisson (thorvaldur@domkirkjan.is)
Ólöf Guðrún Helgadóttir (kirkjan@domkirkjan.is)
Marinó Þorsteinsson (marinohorsteinsson@gmail.com)
Ástbjörn Egilsson (astbjorn@domkirkjan.is)                                                                          Einar Gottskálksson (gottskalksson@residence.is )

 



  • Ný síða
  • Sunnudaginn, 12. september:
    Kl. 11 messa sr. Anna Sigríður Pálsdóttir prédikar
    Skoða alla dagskrá

    Öll börn eða unglingar á aldrinum 1-18 ára ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í Dómkirkjunni. Skoða: Barna og unglingavefinn.


    Dómkórinn leiðir safnaðarsöng í messum og stendur fyrir Tónlistardögum Dómkirkjunnar á hverju hausti og tónleikum á jólum. Dómkórinn syngur að auki við ýmis tækifæri. Meira um Dómkórinn