Fróðleikur um Tónlistardaga Dómkirk
junnar
Soli Deo Gloria - Guði einum til dýrðar er yfirskrift Tónlistardaga Dómkirkjunnar. Víst er um að stór hluti þeirrar tónlistar sem við köllum sígilda er saminn undir þessu kjörorði enda flestir höfuðsnillingar tónbókmenntanna innblásnir trúarhita og gjarnan á launum hjá kirkjunni eða trúræknum auðmönnum.
En þannig er þetta víst ekki lengur. Nú sækja tónskáld stóran hluta launa sinna í opinbera sjóði og eru ekki trúræknari en gengur og gerist. En kirkjan er enn að störfum og hana vantar alltaf tónlist. Þess vegna var það sem forsvarsmenn Dómkirkjunnar með Martein H. Friðriksson dómorganista í fararbroddi efndu til fyrstu Tónlistardaga Dómkirkjunnar árið 1982. Markmiðið var og er að efla og kynna þá tónlist sem samin er guði til dýrðar og fólki til uppbyggingar.
Í þessu skyni er árlega fengið tónskáld til að semja verk fyrir Dómkórinn og aðra flytjendur og er það frumflutt í kirkjunni á upphafstónleikunum. Einnig er tónlistarfólki nær og fjær boðið að halda tónleika. Hátíðin er þannig skipulögð að hún hefst á setningarathöfn þar sem tónverk ársins er frumflutt og sömu helgi er hátíðarmessa þar sem sérstaklega er vandað til tónlistarflutnings. Næstu daga eru svo haldnir þrennir tónleikar og auk þess hafa gjarnan bæst við ljóðakvöld.
Á þeim árum sem liðin eru frá því Tónlistardagar Dómkirkjunnar voru fyrst haldnir hafa öll helstu núlifandi tónskáld Íslands lagt Dómkórnum til tónverk en auk þess hafa þrjú erlend tónskáld, Norðmaðurinn Knut Nystedt, Tékkinn Petr Eben og Þjóðverjinn Siegfried Thiele, verið beðin að semja verk sem kórinn hefur frumflutt. Nokkur þessara verka voru sungin inn á hljómdisk sem Dómkórinn gaf út í tilefni af 200 ára afmæli Dómkirkjunnar árið 1996.
Tónlistardagar fyrri ára
Tónverk samin fyrir Tónlistardaga Dómkirkjunnar
Öll börn eða unglingar á aldrinum 1-18 ára ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í Dómkirkjunni. Skoða: Barna og unglingavefinn.
Dómkórinn leiðir safnaðarsöng í messum og stendur fyrir Tónlistardögum Dómkirkjunnar á hverju hausti og tónleikum á jólum. Dómkórinn syngur að auki við ýmis tækifæri. Meira um Dómkórinn

