Marteinn Hunger Friðriksson
Marteinn Hunger Friðriksson var fæddur 24. apríl 1939 í Meissen í Þýskalandi. Hann lést 9. janúar 2010 .Hann lagði stund á tónlistarnám og lauk B-prófi í kirkjutónlist frá Kirkjutónlistarskólanum í Dresden 1961 og lauk A-prófi við Tónlistarháskóla F. Mendelssohn-Bartholdy í Leipzig 1964. Orgelið var aðalhljóðfæri hans á námsferlinum. Hann lauk lokaprófi í hljómsveitarstjórn og tónsmíðum og kennaraprófi í píanóleik og tónfræðigreinum. Aðalkennarar hans voru E. Schmidt og W. Schetelich. Marteinn kom hingað til lands fyrir milligöngu Róberts A. Ottóssonar árið 1964 og gerðist organleikari Landakirkju og skólastjóri Tónlistarskólans í Vestmannaeyjum. Árið 1970 var hann ráðinn organisti að Háteigskirkju í Reykjavík og hóf þá einnig kennslu við Tónlistarskólann í Reykjavík, þar sem hann er nú deildarstjóri Tónmenntakennaradeildar. Að félagsmálum hefur hann unnið í stjórn Félags íslenskra organleikara og Kennarafélagi Tónlistarskólans í Reykjavík. Hann stjórnaði Söngsveitinni Filharmoníu um árabil.
Störf við Dómkirkjuna
Marteinn H. Friðriksson var ráðinn dómorganisti frá og með 1. desember 1978. Hann hafði þá mesta menntun íslenskra organista og hefur reynst ágætur og mikilvirkur tónlistarmaður. Hann réð mestu um raddskipan hins nýja orgels kirkjunnar og hefur, ekki síst eftir að það kom, getað tekist á við æ vandasamari verkefni í orgeltónlist og er nú meðal fremstu organleikara hér á landi. Þegar á fyrsta mánuði starfs síns tókst Marteini að koma upp kór, sem var stofnaður formlega 8. júlí 1979. Kórinn hefur vaxið með hverju ári og er talinn einn af þremur bestu kirkjukórum Reykjavíkur um þessar mundir. Marteinn hefur gert mikið að því að halda orgeltónleika bæði hér á landi og víða erlendis. Þá hefur hann í mörg ár haldið uppi sumartónleikum fyrir ferðamenn og aðra á virkum dögum í Dómkirkjunni. Að frumkvæði hans var byrjað að halda Tónlistardaga Dómkirkjunnar árið 1982. Þeir hafa verið árviss atburður síðan, og hafa talist til merkisatburða í tónlistarlífi höfuðborgarinnar.
Tónlistardagarnir eru haldnir til að efla og kynna kirkjutónlist. Þeir eiga að vera Guði til dýrðar og fólki til uppbyggingar. Nákvæmara markmið þeirra er þríþætt. Að kynna eitt tónskáld sérstaklega hvert ár. Að ráða árlega tónskáld til að semja verk fyrir flytjendur á tónlistardögunum. Að greiða á hverju ári veg fyrir tónlistarfólk, sem kemur lengra að. Enn er það ásetningur að halda á tónlistardögunum þrenna tónleika og eina messu, þar sem sérstaklega verður vandað til tónlistarflutnings.
Á fyrstu tónlistardögunum, af fjórtan sem liðnir eru, var Páll Ísólfsson kynntur sérstaklega. Hjálmar H. Ragnarsson samdi samkvæmt beiðni kórverkið Gloria, og aðkomufólkið var Haukur Guðlaugsson söngmálastjóri þjóðkirkjunnar og Kirkjukór Akraness.
Meðal tónskálda, sem hafa verið kynnt á tónlistardögum Dómkirkjunnar, eru J. S. Bach, J. Brahms, B. Britten, D. Buxtehude, Cesar-A. Franck, Gabriel Fauré, Jórunn Viðar, F. Mendelssohn-Bartholdy, W. A. Mozart, Peter Eben og Þorkell Sigurbjörnsson. Auk þess var sérstök aldarminning dr. Páls Ísólfssonar á tónlistardögum árið 1993.
Meðal tónskálda, sem hafa samið verk fyrir Dómkórinn, eru: Atli Ingólfsson, Atli Heimir Sveinsson, Hjálmar H. Ragnarsson, Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson, Jón Ásgeirsson, Jón Nordal, Jón Þórarinsson, Jónas Tómasson, Jórunn Viðar, Knut Nystedt frá Osló, Peter Eben frá Prag, Siegfried Thiele frá Leipzig og Þorkell Sigurbjörnsson. Gestir Dómkórsins hafa komið víða að og úr ólíku umhverfi. Meðal þeirra má nefna Arne Rodvelt Olsen frá Tönsberg, Arthur Robson frá Englandi, Barnakór Kársnesskóla, Flemming Dreissig og Jörgen Ernst Hansen frá Kaupmannahöfn, Kársnesskórinn, Kirkjukór Akraness, Kirkjukór Dalvíkur, Knut Nystedt frá Osló, Jacques Taddei frá París, Johan Duijc og Louis Devos frá Belgíu, Peter Eben frá Prag, Rolf Schönstedt frá Hamm í Þýskalandi og Siegfried Thiele og Hans Joachim Rotzsch frá Leipzig.
Margir íslenskir listamenn hafa komið til samstarfs við kórinn, söngstjórar, einsöngvarar og orgelleikarar. Einnig hafa nokkrir kórfélagar komið fram sem einsöngvarar. Dómkórinn hefur og sjálfur lagt land undir fót, farið í söngferðir bæði innan lands og utan, svo sem til Danmerkur, Þýskalands, Belgíu, Tékklands, Spánar og Skotlands.
Öll börn eða unglingar á aldrinum 1-18 ára ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í Dómkirkjunni. Skoða: Barna og unglingavefinn.
Dómkórinn leiðir safnaðarsöng í messum og stendur fyrir Tónlistardögum Dómkirkjunnar á hverju hausti og tónleikum á jólum. Dómkórinn syngur að auki við ýmis tækifæri. Meira um Dómkórinn

