Megináherslur
Dómkirkjan vill vera kærleikssamfélag, glaðvær, umburðarlynd, með djúpar rætur í fagnaðarerindi Jesú Krists og vera í góðum tengslum við umhverfi sitt. Hún vill áfram gegna forystuhlutverki í Þjóðkirkjunni, vera kirkja biskups Íslands og vera staður helgihalds hins opinbera.
Því viljum við ná með því að:
> Efla söfnuðinn með ræktun trúar og vináttu, og taka vel á móti nýju fólki
> Hafa áhugaverð dagskrárefni og vaka yfir nýjum tækifærum
> Vera hefðinni trú
> Vekja áhuga á því starfi sem fram fer í Dómkirkjunni
> Taka þátt í eflingu samfélagsins
Dómkirkjan hefur alltaf safnað að sér fólki sem vill vinna henni gagn og njóta samfélags á vettvangi hennar. Það samfélag hefur einkennst af vináttu og umhyggju og það einkenni viljum við varðveita og efla. Hún vill leggja áherslu á fjölbreytni á fjölmenningartímum og vera í senn torg og athvarf, opin og hlý þeim sem vilja staldra við. Hún vill mæta nýjum straumum með áhuga og virkja sköpunarkraft til framfara. Hún vill láta vita af sér og skipta máli.
Hún er dómkirkja Þjóðkirkjunnar, söguhelgaður staður opinberra helgiathafna og kappkostar að sinna því hlutverki svo vel sem verða má.
Helgihald
Dómkirkjan vill vera áhugavert og hvetjandi samfélag allra aldurshópa til eflingar í trú og tilbeiðslu.
Því viljum við ná með:
> Fjölbreytni í helgihaldi
> Aukinni þjónustu leikmanna
> Samstarfi við listamenn
> Fjölbreyttu tónlistarstarfi
Dómkirkjan er heilagt hús af sögu sinni, trúarlegri þýðingu og fyrir það að hún opnar dyr sínar fyrir öllum þeim sem vilja tilbiðja í anda og sannleika. Hún vill mæta með boðskap sinn og gera hann lifandi fyrir hverri nýrri kynslóð. Hún vill virkja sem flesta til þess að auðga helgihaldið og auka fjölbreytni þess.
Fræðsla
Dómkirkjan vill laða og leiða, fræða og efla. Með samstarfi við foreldra, skóla og menningarstofnanir vill hún efla kristin gildi í þjóðfélaginu.
Því viljum við ná með:
> Öflugu barnastarfi
> Áhugaverðu fermingar- og unglingastarfi
> Fræðsludagskrá fyrir almenning
> Fræðslutilboðum fyrir sérstaka hópa
Dómkirkjan hefur sem aðrar kirkjur það meginverkefni að breiða út fagnaðarerindi Jesú Krists. Á öld margmiðlunar vill Dómkirkjan með stuðningi Þjóðkirkjunnar beita fjölbreyttum leiðum til þess að koma fagnaðarerindinu til skila við allar kynslóðir og ólíka þjóðfélagshópa.
Kærleiksþjónusta
Dómkirkjan vill vera umhyggjusöm og ábyrg gagnvart einstaklingum og samfélagi.
Því viljum við ná með:
> Ábyrgri greiningu vandamálanna
> Traustri sálgæslu og nærveru á vettvangi
> Heimsóknarþjónustu
> Eftirfylgd
> Fyrirbænaþjónustu
Það er eðli safnaðar að ala önn fyrir þeim sem eru á einhvern hátt bágstaddir. Það krefst ábyrgrar afstöðu til vandamálanna og virðingar fyrir eigin takmörkunum og annarra. Þeim sem leita þjónustu á vegum safnaðarins þarf að fylgja eftir af áhuga og ábyrgð. Enginn úr samfélagi safnaðarins má gleymast þótt hann hverfi af daglegum vettvangi.
Starfsheildin
Dómkirkjan vill ávallt hafa á að skipa, samhentu og framsæknu starfsliði.
Því viljum við ná með:
> Traustum og opnum samskiptum
> Fræðslu starfsmanna
> Þátttöku í samstarfi
> Lifandi tengslum
> Eflingu sjálfboðastarfs
Í Dómkirkjunni er góður og sterkur félagsandi. Ýmsir starfshópar hafa vettvang sinn þar, ss. Dómkórinn, Barnakór Dómkirkjunnar, Kirkjunefnd kvenna, Safnaðarfélag Dómkirkjunnar, sóknarnefndin, starfsfólkið, barna- og unglingastarfshópar, Kór Menntaskólans í Reykjavík ofl. Einkum er æskilegt að efla Safnaðarfélagið sem vettvang flestra og hafa að miðstöð sjálfboðastarfs og samfélagseflingar. Mikilvægt er að starfsheildin sé trúverðug, áhugasöm og lifandi. Félagsskapur, vinátta og virðing eru þættir sem nauðsynlegt er að rækta. Tengsl út í samfélagið eru sömuleiðis mikilvæg fyrir starfslið og embættismenn safnaðarins.
Áfram veginn
Með þetta að leiðarljósi höldum við sem trúnaður er falinn af söfnuði Dómkirkjunnar á vit komandi tíma og minnumst orða postulans sem segir:
Verið ávallt glöð í Drottni. Ég segi aftur: Verið glöð. Ljúflyndi yðar verði kunnugt öllum mönnum. Drottinn er í nánd. Verið ekki hugsjúk um neitt, heldur gjörið í öllum hlutum óskir yðar kunnar Guði með bæn og beiðni og þakkargjörð. Og friður Guðs, sem er æðri öllum skilningi, mun varðveita hjörtu yðar og hugsanir yðar í Kristi Jesú. Fil 4:5-7
Starfsáætlun þessi var unnin af prestum og öðru starfsfólki og áhugamönnum ásamt með sóknarnefnd Dómkirkjunnar 2002-2003.
Öll börn eða unglingar á aldrinum 1-18 ára ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í Dómkirkjunni. Skoða: Barna og unglingavefinn.
Dómkórinn leiðir safnaðarsöng í messum og stendur fyrir Tónlistardögum Dómkirkjunnar á hverju hausti og tónleikum á jólum. Dómkórinn syngur að auki við ýmis tækifæri. Meira um Dómkórinn

