Í Dómkirkjunni ríkir andi vináttu og hlýju
Dómkirkjan er gamalt og virðulegt hús og tengt hefðum. En hún er líka lifandi samfélag ungra og aldinna. Hún er sóknarkirkja gamla Vesturbæjarins, Miðborgarinnar og Þingholtanna. Samkvæmt stefnuskrá hennar sem við köllum Leiðarljós safnaðarlífsins vill hún vera kærleikssamfélag, glaðvær og umburðarlynd, jafn trú samtíð sinni sem hefðinni.
Sá sem sækir samkomur á hennar vegum á að verða var við notalegt andrúmsloft vináttunnar, skynja helgi og finna stöðuga viðleitni til þess að mæta þörfum manneskjunnar í síbreytilegum heimi.
Kirkja er ekki aðeins hús. Hún er í raun fyrst og fremst fólk, söfnuður. Á hverri viku eru fleiri en tíu samkomur á hennar vegum, auk tilfallandi athafna, AA-funda og fleira. Eitthvað af því sem fram fer á vegum safnaðarins er líklegt til þess að henta þér og ef ekki þá er bara að athuga hvort það er ekki hægt að koma því á.
Við eigum drauma um sívaxandi fjölbreytt starf og leggjum okkur fram um að láta þá drauma rætast og þú gætir átt hlut að því máli, verið fólginn í þeim draumum. Vissulega ertu einn af draumum Guðs og hann langar til að hann rætist til fulls. Það er náttúrlega undir þér komið og ekki eru allir draumar Guðs bundnir við kirkju hans, þeir eru stærri og fleiri en svo.
Kirkja Krists er fjölmennt samfélag í veröldinni og áhrifaríkt. Eins og fleiri er Þjóðkirkjan skilgetið afkvæmi Kaþólsku kirkjunnar eða jafnvel kaþólsk, evangelísk kaþólsk eins og einhver kallaði hana, því orðið kaþólskur þýðir almennur. Við játum líka trú á eina heilaga, almenna (kaþólska) kirkju. Hún stendur við hlið búddatrúar sem er eldri og múhameðstrúar sem er yngri sem helstu mótendur hugsunar og lífsaðferðar mannanna í heiminum. Hún er okkar hugsunarrammi og við þurfum að þekkja hann til þess að þekkja okkur sjálf og því ber að leggja meiri áherslu á fræðslu um hana í skólunum þó tilbeiðslan verði verkefni heimila og kirkjusamfélaga.
Höldum fast í kjarna hennar og rækjum þá þætti menningar okkar sem eru á henni byggðir og þá höfum við traustan grundvöll til enn frekari framsóknar en týnum þó ekki sjálfum okkur við þá viðleitni. Menningarrrof teljast oftast til slysa og því ber að varast það.
Jakob Ágúst Hjálmarsson
Öll börn eða unglingar á aldrinum 1-18 ára ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í Dómkirkjunni. Skoða: Barna og unglingavefinn.
Dómkórinn leiðir safnaðarsöng í messum og stendur fyrir Tónlistardögum Dómkirkjunnar á hverju hausti og tónleikum á jólum. Dómkórinn syngur að auki við ýmis tækifæri. Meira um Dómkórinn

