Safnaðarfélag

Safnaðarfélag Dómkirkjunnar er stofnað til þess að vera vettvangur starfsfólks og reglulegra kirkjugesta til samfélagseflingar og framkvæmda á félagssviði safnaðarlífsins. Það heldur að jafnaði fundi sína á eftir messu fyrsta sunnudag hvers vetrarmánaðanna. Þá eru gjarnan haldin erindi sem ýmist fjalla um það sem er að gerast á vettvangi safnaðarins eða fróðlegt efni af öðru tagi.
  • Á vegum þess er jafnan farin ferð að vorlagi eða snemmsumars þar sem er gistur einhver merkisstaður.

Formaður safnaðarfélagsins er Marta Ragnarsdóttir, aðrir stjórnarmenn eru Ragnheiður
Þórðardóttir, Ásta Kristjánsdóttir, Ástbjörn Egilsson og Einar Gottskálksson

 

Safnaðarfélag Dómkirkjunnar: starfsreglur samþykktar á stofnfundi 8. nóv 1992


1. gr.
Safnaðarfélag Dómkirkjunnar
er samfélag virkra safnaðarmeðlima og annara velunnara Dómkirkjunnar og hefur það markmið
a. að vinna með sóknarnefnd og starfsmönnum safnaðarins að verkefnum hans
b. að vera vettvangur hugmynda og framkvæmda á safnaðarsviðinu
c. að efla safnaðarlífið með því að laða fólk til þjónustu í söfnuðinum
d. að vera tæki til eflingar og skilvirkni í þjónustu þeirra sem virkir eru í safnaðarstörfunum.

2. gr.
Stjórn félagsins
er skipuð fimm mönnum. Skal hún kosin á aðalfundi til eins árs í senn og skal ekki endurkjósa neinn stjórnarmann til sama embættis. Skipa hana formaður, fráfarandi formaður, varaformaður, ritari og gjaldkeri. Varaformaður skal jafnan ganga upp sem formaður og fráfarandi formaður sitja áfram í stjórn sem meðstjórnandi. Enga varamenn skal kjósa nema varaformann sem situr í stjórn með fullum réttindum stjórnarmanns. Gæta skal þess að a.m.k. einn stjórnarmanna sé valinn úr hópi sóknarnefndarfólks.

3. gr.
Fundi
sína skal félagið jafnan halda í tengslum við guðsþjónustur safnaðarins og haga störfum sínum í samræmi við stefnu sóknarnefndar og í einlægri samvinnu við presta og starfsmenn safnaðarins.

4. gr.
Starfsnefndir félagsins
eru tæki þess til virkjunar meðlimanna og ákvarðast þær af þeim sviðum kirkjustarfsins sem félagið vill sinna ásamt þeim nýmælum sem það vill koma til leiðar. Einkum eru hér nefndar:
Félaganefnd, sem heldur utanum hópinn, veitir félögum persónulega athygli og stuðning og fylgist með að verðugar viðurkenningar séu veittar og gegnir jafnframt hlutverki veitinga-, ferða- og skemmtinefndar.
Kynningarnefnd, sem leggur lið blaðaútgáfu, auglýsingum og hvers kyns kynningu á starfi safnaðarins.
Fræðslunefnd, sem er virk í hinu almenna fræðslustarfi, fullorðins- fræðslunni.
Æskulýðsnefnd, sem leggur lið í unglinga- og barnastarfi.
Líknarþjónustunefnd, sem fylgist með störfum Hjálparstofnunar Kirkjunnar og Kristniboðsins og leitar þarfa bágstaddra sóknarbarna.
Kirkjulistanefnd, sem eflir listalíf í söfnuðinum, á aðild að Kirkjulistahátíð og styður starf Dómkórsins.
Ekki þurfa þeir sem hafa embætti eða þjónustu í söfnuðinum að taka skipun í starfsnefnd.
Sérstakt hlutverk varaformanns er að fylgjast með störfum starfsnefnda.

5. gr.
Fjármál.
Ekki skulu meðlimir greiða nein félagsgjöld, en fjár skal félagið afla til stafsemi sinnar í samráði við sóknarnefnd og getur það sótt beint til sóknarnefndar um framlög til ákveðinna verkefna eða starfsþátta.

6. gr.
Endurskoðendur
reikninga skulu vera gjaldkeri sóknarnefndar og safnaðarfulltrúi.

7. gr.
Aðalfund
skal halda í maímánuði ár hvert. Er þar vettvangur starfsskila stjórnar, afgreiðslu ársreiknings, kosningar nýrrar stjórnar og lagabreytinga.

8. gr.
Lög félagsins og lagabreytingar skulu hljóta staðfestingu sóknarnefndar Dómkirkjunnar.


 

 



Sunnudaginn, 12. september:
Kl. 11 messa sr. Anna Sigríður Pálsdóttir prédikar
Skoða alla dagskrá

Öll börn eða unglingar á aldrinum 1-18 ára ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í Dómkirkjunni. Skoða: Barna og unglingavefinn.


Dómkórinn leiðir safnaðarsöng í messum og stendur fyrir Tónlistardögum Dómkirkjunnar á hverju hausti og tónleikum á jólum. Dómkórinn syngur að auki við ýmis tækifæri. Meira um Dómkórinn