Hjálparsjóður Dómkirkjunnar er burðarás í líknarþjónustu innan safnaðarins. Úr honum eru aðallega afgreidd mætvæli og lyf. Þessum gjöfum stendur safnaðarfólk undir með beinum samskotum.
Líknarsjóður Dómkirkjunnar er í umsjá Kirkjunefndar kvenna Dómkirkjunnar sem afla fjár í hann. Hann veitir stærri styrki til barnafólks.
Heimilislaust óreglufólk hefur nokkuð leitað hjálpar hjá söfnuðinum og höfum við reynt að vísa þeim til Hjálparstarfsins. Það leiðir hugann að verkefnum sem við höfum sem miðborgarsöfnuður.
Ef þú vildir styðja líknarstarf Dómkirkjunnar með fjárframlagi gætir þú lagt inn á reikning sjóðsins í Íslandsbanka 513-15-160250 kt. 500169-5839
Öll börn eða unglingar á aldrinum 1-18 ára ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í Dómkirkjunni. Skoða: Barna og unglingavefinn.
Dómkórinn leiðir safnaðarsöng í messum og stendur fyrir Tónlistardögum Dómkirkjunnar á hverju hausti og tónleikum á jólum. Dómkórinn syngur að auki við ýmis tækifæri. Meira um Dómkórinn

