Æskulýðsstarf
Æskulýðsstarf Dómkirkjunnar hefur verið blómlegt um árabil. Dómkirkjan vill styðja við trúaruppeldi foreldra í sókninni með barna- og unglingastarfi fyrir alla aldurshópa.
Sunnudagaskóli er hvern sunnudag á kirkjuloftinu kl. 11 á meðan á messu stendur. Sunnudagaskólinn er opin öllum og geta foreldrar notið messunnar á meðan börnin taka þátt í sunnudagaskólanum.
Dómkirkjan hefur verið í góðu samstarfi við leikskólana í sókninni. Prestar kirkjunnar eru gjarnan tengiliðir við viðbragðsteymi skólanna. Skólahópar hafa komið til kirkju á aðventu. Æskulýðsfulltrúi hefur heimsótt leikskóla einu sinni í mánuði undanfarin ár.
Fermingarfræðsla safnaðarins er í safnaðarheimilinu miðvikudaga kl. 17.00