Helgi Skúli, Ágústa og Dagbjört.
Laufey Böðvarsdóttir, 23/4 2014
Kyrrðarbæn í dag, miðvikudag kl. 17:30 í safnaðarheimilinu Lækjargötu 14a. Hjartanlega velkomin
Laufey Böðvarsdóttir, 23/4 2014
Opna húsið verður ekki á sumardaginn fyrsta né 1. maí. Sjáumst 8. maí og minni á sumarferðina sem farin verður 22. maí
Laufey Böðvarsdóttir, 23/4 2014
Minni á prjónakvöldið í safnaðarheimilinu þriðjudaginn 22 apríl. Við byrjum um kl. 19, góð súpa og kaffi. Við fáum góðan gest í heimsókn Helga Skúla Kjartansson, sagnfræðing. Helgi Skúli er hafsjór af fróðleik og skemmtilegur. Hlökkum til að sjá ykkur, allir velkomnir. Þess má geta að nokkrar kirkjukonur sjá um veitingarnar á þessum kvöldum og selja þær á vægu verði, en innkoman fer í viðhaldssjóð. Þannig í vor verðum þessum peningum varið í eitthvað gott fyrir kirkjuna okkar fallegu.
Laufey Böðvarsdóttir, 21/4 2014
Bænastundin í hádeginu á morgun, þriðjudag 22. apríl verður í safnðarheimilinu ekki í kirkjunni ens og vanalega.
Laufey Böðvarsdóttir, 20/4 2014
Í dag, 21. apríl er messa kl. 11 séra Anna Sigríður Pálsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur og Kári Þormar er organisti. Dómkórinn í Reykjavík var stofnaður árið 1978 af Marteini H. Friðrikssyni sem stjórnaði honum þar til hann lést í ársbyrjun 2010. Þá um sumarið tók núverandi dómorganisti, Kári Þormar, við kórnum. Dómkórinn annast messusöng í Dómkirkjunni. Í kórnum syngja um fjörutíu manns og hefur hann gefið út nokkra hljómdiska og haldið fjölda tónleika, bæði hér heima og erlendis. Öll helstu tónskáld Íslands, auk nokkurra útlendra, hafa samið tónverk fyrir kórinn í tilefni af Tónlistardögum Dómkirkjunnar sem haldnir hafa verið á hverju hausti frá árinu 1982. Auk þess hefur kórinn tekist á við ýmis stórvirki tónbókmenntanna og má þar nefna Þýska sálumessu Jóhannesar Brahms, Jólaóratoríu Jóhanns Sebastians Bach og Requiem Wolfgangs Amadeusar Mozart.
Laufey Böðvarsdóttir, 20/4 2014
Frú Agnes M. Sigurðardóttir, biksup Íslands prédikaði árla morguns við hátíðarguðþjónustu, sr. Anna og Sr. Hjálmar þjónuðu. Messa var einnig kl. 11 og þá prédikaði séra Hjálmar og fermdi tvö börn. Fagur var söngur Dómkórins og sem söng við báðar messurnar og Kári var organisti. Dómkórinn var með sitt árlega veisluborð á kirkjuloftinu og þar ríkti gleði. Þökkum öllum fyrir góðan dag og óskum fermingarbörnum og fjölskyldum þeirra hjartanlega til hamingju.
Laufey Böðvarsdóttir, 20/4 2014
Laufey Böðvarsdóttir, 20/4 2014
Páskadagur 20.apríl
Hátíðarmessa kl. 08 frú Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands prédikar, séra Hjálmar Jónsson og séra Anna Sigríður Pálsdóttir þjóna. Dómkórinn syngur og Kári Þormar er organisti.
Hátíðarmessa kl. 11 Sr. Hjálmar jónsson prédikar og þjónar. Fermd verða þau Konráð Kárason Þormar og Þula Guðrún Árnadóttir. Dómkórinn syngur og Kári Þormar er organisti.
Annan dag páska 21. apríl er messa kl. 11 séra Anna Sigríður Pálsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur og Kári Þormar er organisti.
Laufey Böðvarsdóttir, 19/4 2014
Kirkjan er opin alla virka daga frá 10-14
Viðtalstímar presta eru í safnaðarheimilnu
Lækjargötu 14a,
þri-fös 11-12 og eftir samkomulagi.
Sími: 520-9700.
Skráning í fermingarfræðslu
- 12:00 Hádegisbæn
Bach tónleikar 20.00-20.30
Kirkjustræti, 101 Reykjavík.. Sími 5209700 , fax 5209701 · Kerfi