Senn kemur út Dómkirkjan í Reykjavík III, Á aldahvörfum eftir sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson. I Byggingasagan og II Í iðu þjóðlífs eftir sr. Þóri Stephensen fyrrum dómkirkjuprest komu út í einu bindi á 200 ára afmæli kirkjunnar 1996. Tíminn sem síðan er liðinn hefur verið mjög viðburðarríkur, framkvæmdir og breytingar hafa orðið sem nauðsynlegt var talið að gera skil.
Í væntanlegri bók verður þó áherslan fyrst og fremst á starfinu í Dómkirkjunni og á vegum safnaðar hennar. Margt fólk hefur komið að þar við sögu og er sjálfsagt að hlut þess séu gerð skil, svo mjög sem allt það sem fram hefur farið hefur byggst á framlagi þess.
Dómkirkjan í Reykjavík III, Á aldahvörfum er 154 blaðsíður í pappírskilju, ríkulega prýdd myndum og kemur út í áskrift í júní byrjun og verða eintök númeruð eftir því sem áskriftarbeiðnir berast. Pantanir skulu berast í tölvupósti til domkirkjan@domkirkjan.is eða í síma hjá kirkjuverði 520-9700. Eintakið mun kosta 5.000 krónur og greiðist inn á reikning 301-13-111732 fyrir 1. júní og verður svo sent heim.
Laufey Böðvarsdóttir, 31/5 2014
Messa á sjómannadaginn kl. 11, frú Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands prédikar og sr. Hjálmar Jónsson þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur undir stjórn Kára Þormar dómorganista., einsöngvari Kristján Jóhannsson óperusöngvari. Hjartanlega velkomin.
Laufey Böðvarsdóttir, 30/5 2014
Á uppstigningardag 29. maí er messa kl. 11. Séra Hjálmar Jónsson og ræðumaður er Davíð Scheving Thorsteinsson. Dómkorinn og organisti er Kári Þormar. Messukaffi á eftir í safnaðarheimilinu við Vonarstræti. Hjartanlega velkomin
Laufey Böðvarsdóttir, 27/5 2014
Í dag þriðjudag er bænastund í hádeginu kl. 12:10-12:30. Léttur hádegisverður í safnaðarheimilinu við Vonarstræti á eftir. Upplagt að eiga góða stund í hádeginu og fara síðan endurnærð á sál og líkama í verkefni dagsins.
Laufey Böðvarsdóttir, 27/5 2014
Á uppstigningardag 29. maí er messa kl. 11. Séra Hjálmar Jónsson og ræðumaður er Davíð Scheving Thorsteinsson. Messukaffi á eftir í safnaðarheimilinu við Vonarstræti. Hjartanlega velkomin.
Laufey Böðvarsdóttir, 27/5 2014
Fundur hjá Kirkjunefnd kvenna Dómkirkjunnar á morgun, mánudag kl. 17 í safnaðarheimilinu Lækjargötu 14a.
Laufey Böðvarsdóttir, 25/5 2014
Messa kl.11 sunnudaginn 25 maí. Séra Anna Sigríður Pálsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur og organisti er Kári Þormar. Verið velkomin
Laufey Böðvarsdóttir, 23/5 2014
Æðruleysismessur byrja aftur í haust, þökkum samveruna í vetur gott fólk. Minni á að alla sunnudaga eru messur kl. 11 og alla þriðjudaga er bæna-og kyrrðarstund í hádeginu kll. 12.10-12:30. Eftir bænastundina er hádegisverður og góð samvera í safnaðarheimilunu við Vonarstræti. Hjartanlega velkomin.
Laufey Böðvarsdóttir, 22/5 2014
Laufey Böðvarsdóttir, 22/5 2014
Laufey Böðvarsdóttir, 20/5 2014