Dómkirkjan

 

Kæru fermingarbörn dagsins, óskum ykkur og fjölskydum ykkar hjartanlega til hamingju.

IMG_1695IMG_1684

Laufey Böðvarsdóttir, 29/3 2015

Fermingarmessa á pálmasunnudag kl.11:00

Fermingarmessa á pálmasunnudag kl. 11:00. Fermd verða:
Díana Rós Del Negro
Frosti Sigurjónsson
Katrín Hersisdóttir
Margrét Rós Vilhjálmsdóttir
Rebekka Sigtryggsdóttir
Steinunn Lárusdóttir
Tinna Martinsdóttir
Theodór Ari Ortiz.
Hjartanlega velkomin.
Karl Sigurbjörnsson biskup prédikar og séra Sveinn Valgeirsson þjónar. Dómkórinn syngur undir stjórn Kára Þormar dómorganista. Sunnudagaskólinn verður á kirkjuloftinu í umsjón Ólafs Jóns og Sigurðar Jóns, sunnudagaskólinn fer síðan í frí fram yfir páska. Hann verður aftur sunnudaginn 12. apríl.

Hjartanlega velkomin.

Laufey Böðvarsdóttir, 26/3 2015

Jóhannes Benediktsson talar um Galdra-Loft á morgun fimmtudag.

Á morgun, fimmtudag verður Jóhannes Benediktsson gestur okkar og hann mun fjalla um Galdra-Loft. Opna húsið er frá 13:30-15:30. Fræðandi erindi, góð samvera og gott með kaffinu.

Laufey Böðvarsdóttir, 25/3 2015

Karl Sigurbjörnsson, biskup ásamt Ólöfu Sesselju Óskarsdóttur og Árna Árnasyni sem lásu ritningarlesrana sl. sunnudag á boðunardegi Maríu.
Fermingarmessa verður á pálmasunnudag kl. 11:00 Karl Sigurbjörnsson, biskup prédikar og séra Sveinn Valgeirsson þjónar fyrir altari. Dómkórinn í Reykjavík syngur undir stjórn Kára Þormar dómorganista.IMG_1628

Laufey Böðvarsdóttir, 24/3 2015

Það var fallegt handverkið sem unnið var á prjónakvöldinu í Safnaðarheimilinu í kvöld.

IMG_1650IMG_1661IMG_1651

IMG_1647

Laufey Böðvarsdóttir, 24/3 2015

Það er gaman að grúska í gömlum myndum hér í Dómkirkjunni. Hér eru þau: séra Hjalti heitinn Guðmundsson, dómkirkjuprestur og Valgerður Hjörleifsdóttir glöð á góðri stund.

img167

Laufey Böðvarsdóttir, 23/3 2015

Kæru fermingarbörn, foreldrar og forráðamenn! Á morgun, þriðjudag verður spurningakeppni í Ungdóm kl. 19:30. Kær kveðja, Óli Jón og Siggi Jón

Laufey Böðvarsdóttir, 23/3 2015

Prjónakvöld, mánudagskvöldið 23. mars kl. 19:00.

Prjónakvöld, mánudagskvöldið 23. mars kl. 19:00 í Safnaðarheimilinu við Vonarstræti. Létt máltíð, kaffi, sætt með kaffinu og skemmtilegur félagsskapur.

Laufey Böðvarsdóttir, 22/3 2015

Karl Sigurbjörnsson prédikar og þjónar fyrir altari sunnudaginn 22. mars

Messa kl 11 sunnudaginn 22. mars, Karl Sigurbjörnsson prédikar og þjónar fyrir altari Ólöf Sesselja Óskarsdóttir og Árni Árnason lesa ritningarlestrana. Dómkórinn syngur undir stjórn Kára Þormar dómorganista. Skemmtilegi Sunnudagaskólinn á kirkjuloftinu í umsjón Ólafs Jóns og Sigga Jóns. Verið hjartanlega velkomin.

Laufey Böðvarsdóttir, 19/3 2015

Borghildur Fenger, fyrrverandi formaður Hringsins var gestur okkar í Opna húsinu. Hún sagði okkur frá því dýrmæta starfi sem konur í kvenfélaginu Hringnum vinna. Hringskonur hafa sinnt velferðarmálum barna og öðrum góðgerðarmálum af miklum metnaði, bjartsýni og dugnaði. Það var hvetjandi að heyra hvað sjálfboðið starf getur áorkað miklu. Þökkum Borghildi kærlega fyrir. Næsta fimmtudag, þann 19. mars kemur Gunnar F. Guðmundsson sagnfræðingur og segir frá Jóni Sveinssyni, Nonna. Aliir velkomnir

IMG_1575

Laufey Böðvarsdóttir, 18/3 2015

Kirkjan er opin alla virka daga frá 10-14

Viðtalstímar presta eru í safnaðarheimilnu
Lækjargötu 14a,
þri-fös 11-12 og eftir samkomulagi.
Sími: 520-9700.

Skráning í fermingarfræðslu

Miðvikudagur

Tíðasöngur klukkan 9.15 .
Örpílagrímagöngur frá Dómkirkjunni kl. 18.00 yfir vetrarmánuðina

Dagskrá ...