Dómkirkjan

 

Við slökkviliðsmessu í Dómkirkjunni á morgun, sunnudag verður rifjuð upp samfylgd slökkviliðs og Dómkirkjunnar, sem minnist 220 ára vígsluafmælis um þessar mundir. Fyrstu áratugina var skrúðhús kirkjunnar jafnframt slökkvistöð bæjarins. En ekki aðeins að við séum með þessu að horfa um öxl, þó það sé mikilvægt til að staðsetja sig, átta sig í samtíð sinni. Sérhver stund í helgidóminum er vonartákn og framtíðarsýn, til þeirrar framtíðar sem Drottinn Kristur heitir og gefur.
Við messuna munu slökkviliðsmenn, sjúkraflutningafólk og bráðaliðar lesa texta og Dómkórinn mun syngja svonefnd Vaktaravers. Vaktararnir voru forverar lögreglu og brunavarða og gengu um göturnar og sungu á hverjum heilum tíma eitt vers af þessum vaktaravísum, eða sálmi, til að láta vita að allt væri með felldu auk þess að tilkynna hvað tímanum liði. Til dæmis þetta:
Alfaðir að oss gái,
ungum og gömlum hér,
eitt virki um oss slái,
engla blessaður her!
Hann er staðarins hlíf,
geymi vor hús,
Guðs son Jesús,
góss, anda, sál og líf

Laufey Böðvarsdóttir, 8/10 2016

Fermingarbarnaferð í Vatnaskóg

Á fimmtudaginn kemur, 6. október munum við fara á fermingarbarnanámskeið í Vatnaskógi.

Rútan mun leggja af stað frá Dómkirkjunni kl. 15:30 og heimferð er áætluð um kl. 17:00 daginn eftir, þ.e. á föstudaginn. Gott er að vera komin(n) ekki seinna en 15:15 við skrúðhússdyr Dómkirkjunnar.

Þau börn sem eru í Hagaskóla þurfa ekki að fá sérstakt frí þar sem starfsdagur kennara er daginn eftir. Landakotsskóli er enn fremur búinn að gefa börnunun leyfi.
Þau börn sem eru öðrum skólum þurfa að fá leyfi hjá viðkomandi skólastjórnendum.

Gullna reglan:

“Allt sem þér viljið, að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra”

Ef einhverjar spurningar vakna þá endilega hafið samband við okkur.

Laufey Böðvarsdóttir, 5/10 2016

Ómar Smári Ármannsson er gestur okkar í Opna húsinu á morgun, fimmtudag, hann mun tala um Furður Reykjanesskagans. Sjáumst kl. 13.30 Í safnaðarheimilinu og njótum frásagnar Ómars Smára og veislukaffið hennar Ástu verður á sínum stað.

Laufey Böðvarsdóttir, 5/10 2016

Dómkirkjan ætlar að efna til ,,Slökkviliðsmessu“ sunnudaginn 9. október nk. kl. 11:00. Tilefnið er 220 ára afmæli kirkjunnar, en skrúðhús hennar (litla viðbyggingin) var fyrsta slökkvistöð Reykjavíkur.

Dómkirkjan ætlar að efna til ,,Slökkviliðsmessu“ sunnudaginn 9. október nk. kl. 11:00.
Tilefnið er 220 ára afmæli kirkjunnar, en skrúðhús hennar (litla viðbyggingin) var fyrsta slökkvistöð Reykjavíkur og var þá nefnt „Sacristie- og Spröjtehus.“ Þessu hlutverki gegndi skrúðhúsið frá 1827-1886. Þegar Dómkirkjan var stækkuð 1848 og núverandi skrúðhús byggt, var slökkvitækjunum ætlað það rými, sem nú geymir snyrtingu og forstofu. Athafnasvæði presta og meðhjálpara var þar fyrir innan, eins og nú er, en dyr þangað voru á austurvegg byggingarinnar. Þórir Stephensen: Dómkirkjan í Reykjavík,II,bls. 209-210.

Af þessu tilefni er boðið til sérstakrar guðsþjónustu með þátttöku slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Fulltrúar þeitta munu lesa texta við messuna og fluttar verða bænir og þakkargjörð fyrir slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn og starf þeirra í þágu bæjarbúa. Karl Sigurbjörnsson predikar og þjónar fyrir altari. Dómkórinn og organisti er Kári Þormar. Gamlir slökkvibílar og búnaður verða til sýnis við kirkjuna og eftir messu býður Kirkjunefnd kvenna Dómkirkjunnar til messukaffis í Safnaðarheimilinu við Lækjargötu 14. Allir velkomnir.

Laufey Böðvarsdóttir, 3/10 2016

Skemmtilegir gestir í Opna húsinu í dag, þeir Páll Bragi Kristjónsson sem sagði frá bernskuárum sínum á Bessastöðum og Jón Ragnar Ríkharðsson sem spilaði og söng. Gaman að fá góða gesti, takk fyrir skemmtunina.

14542695_10207098889169944_1710985087_n

14502085_10207098889969964_895825207_n

Laufey Böðvarsdóttir, 29/9 2016

Séra Skúli S. Ólafsson prédikar í Dómkirkjunni sunnudaginn 2. október kl. 11. Dómkórinn syngur og organisti er Douglas A. Brotchie. Barnastarfið á kirkjuloftinu í umsjón Helgu Kolbeinsdóttur. Minni á bílastæðin gengt Þórshamri. Verið hjartanlega velkomin.

Laufey Böðvarsdóttir, 29/9 2016

Páll Bragi Kristjónsson segir frá bernskuárum sínum á Bessastöðum í Opna húsinu á fimmtudaginn. Einnig kemur Jón Ragnar Ríkharðsson með gítarinn og syngur fyrir okkur, þetta verður mikið fjör. Veislukaffi hjá Ástu okkar. Sjáumst kl. 13.30 í Safnaðarheimilinu á fimmtudaginn.

Laufey Böðvarsdóttir, 27/9 2016

Kyrrðar- og bænastund í hádeginu í dag, léttur hádegisverður að hætti Ástu í safnaðarheimilinu. Bach tónleikar Ólafs Elíassonar í Dómkirkjunni kl. 20.30-21.00. Verið velkomin.

Laufey Böðvarsdóttir, 27/9 2016

Ljómandi skemmtileg haustferð í Hvalfjörðinn í gær, Karl biskup var fararstjóri. Skoðuðum merkilegt herminjasafn á Hlöðum, þar sem við borðuðum hádegisverð og Gaui sagði okkur frá hernáminu. Gaman var að koma í Hallgrímskirkju í Saurbæ, en þar sagði Karl biskup okkur margt áhugavert. Loks tók Ragnheiður Guðmundsdóttir, djákni á móti okkur í Innra – Hómskirkju, hún sagði frá kirkjunni og bauð síðan öllum hópnum í kaffi og þessar líka fínu veitingar. Við þökkum kærlega fyrir okkur.

IMG_0365 (1)

IMG_0377

IMG_0407

IMG_0410

IMG_0417

IMG_0413

Laufey Böðvarsdóttir, 23/9 2016

Sunnudagaskóli í umsjón Helgu Kolbeinsdóttur guðfræðings og messa á sunnudaginn kl. 11. Karl Sigurbjörnsson, biskup prédikar og þjónar fyrir altari. Dómkórinn og organisti er Kári Þormar. Hlökkum til að sjá ykkur.

Laufey Böðvarsdóttir, 21/9 2016

Kirkjan er opin alla virka daga frá 10-14

Viðtalstímar presta eru í safnaðarheimilnu
Lækjargötu 14a,
þri-fös 11-12 og eftir samkomulagi.
Sími: 520-9700.

Skráning í fermingarfræðslu

Fimmtudagur

- 13.00- 14.30 Opna húsið í safnaðarheimilinu, samvera, fræðsla og gott með kaffinu. Yfir vetrarmánuðina.
Tíðasöngur kl. 17.00 yfir vetrarmánuðina.
21.00 AA fundur

Dagskrá ...