Dómkirkjan

 

Karl Sigurbjörnsson, biskup prédikar við messu sunnudaginn 18. júní kl. 11. Dómkórinn syngur og organisti er Kári Þormar. Verið hjartanlega velkomin og við minnum á bílastæðin við Alþingi.

Laufey Böðvarsdóttir, 16/6 2017

Bach-tónleikar falla niður 13. og 20. júní og 11. júlí.

Bach tónleikar Ólafs Elíassonar eru á þriðjudagskvöldum kl. 20.30. Þeir falla þó niður eftirfarandi þriðjudaga: 13. og 20 júní sem og 11. júlí.  Unfortunately our series of three Bach concerts series scheduled for the following Tuesdays: 13th June, 20th June and 11th July have been cancelled. We apologise for any inconvenience caused.

Laufey Böðvarsdóttir, 12/6 2017

Gleðilegan sjómannadag, hér er linkur frá messunni í morgun:http://www.ruv.is/sarpurinn/ras-1/gudsthjonusta-i-domkirkjunni/20170611

http://www.ruv.is/sarpurinn/ras-1/gudsthjonusta-i-domkirkjunni/20170611

Laufey Böðvarsdóttir, 11/6 2017

Sjómannadagsmessa kl. 11 á morgun, sunnudag.

Biskup Íslands Agnes M. Sigurðardóttir þjónar ásamt séra Hjálmari Jónssyni sem prédikar. Douglas Brotchie er organisti og Dómkórinn syngur. Sjómenn frá Landhelgisgæslunni lesa ritningarlestrana. Viðar Gunnarsson syngur einsöng og systurnar Ingibjörg Ragnheiður Linnet og Herdís Ágústa Linnet spila á trompet. Minnum á bílastæðin við Alþingi. Verið velkomin.

Laufey Böðvarsdóttir, 10/6 2017

Ein umsókn um embætti sóknarprests í Dómkirkjuprestakalli

Ein umsókn er um embætti sóknarprests í Dómkirkjuprestakalli, Reykjavíkurprófastsdæmi vestra. Umsækjandinn er sr. Sveinn Valgeirsson, settur sóknarprestur í Dómkirkjuprestakalli.

Umsóknarfrestur um embættið rann út 8. júní sl. Biskup Íslands skipar í embættið frá 1. júlí nk. til fimm ára. Umsóknin fer nú til umfjöllunar matsnefndar um hæfni til prestsembættis og að fenginni niðurstöðu hennar fjallar kjörnefnd prestakallsins um hana og biskup tekur síðan við málsmeðferð að því loknu.

Laufey Böðvarsdóttir, 9/6 2017

Bach tónleikar Ólafs Elíassonar eru á þriðjudagskvöldum kl. 20.30. Þeir falla þó niður eftirfarandi þriðjudaga: 13. og 20 júní sem og 11. júlí. Unfortunately our series of three Bach concerts series scheduled for the following Tuesdays: 13th June, 20th June and 11th July have been cancelled. We apologise for any inconvenience caused.

Laufey Böðvarsdóttir, 9/6 2017

Guðsþjónusta í Dómkirkjunni á 2. hvítasunnudag kl. 11.00 Verið alveg hjartanlega velkomin

Laufey Böðvarsdóttir, 4/6 2017

Fermingarmessa á hvítasunnudag kl. 11. Dómkórinn syngur undir stjórn Kára Þormar, dómorganista. Séra Hjálmar Jónsson og séra Sveinn Valgeirsson þjóna. Á annan í hvítasunnu er messa kl. 11 þar sem séra Hjálmar Jónsson þjónar. Minnum á bílastæðin gengt Þórshamri. Hjartanlega velkomin í Dómkirkjuna.

Laufey Böðvarsdóttir, 1/6 2017

Fermingarbörn 2018

Fermingarstarfið hefst í haust með messu og fundi með fermingarbörnum og forráðamönnum. Fermingardagarnir 2018 verða pálmasunnudagur, skírdagur og hvítasunnudagur. Skráning með því að senda póst á kirkjan@domkirkjan.is

Nánari upplýsingar í síma 520-9700

Laufey Böðvarsdóttir, 1/6 2017

Æfing fyrir fermingarbörnin sem fermast á hvítasunnudag kl. 16 á föstudaginn í kirkjunni.

Laufey Böðvarsdóttir, 1/6 2017

Kirkjan er opin alla virka daga frá 10-14

Viðtalstímar presta eru í safnaðarheimilnu
Lækjargötu 14a,
þri-fös 11-12 og eftir samkomulagi.
Sími: 520-9700.

Skráning í fermingarfræðslu

 

Kirkjustræti, 101 Reykjavík.. Sími 5209700 , fax 5209701 · Kerfi RSS