Dómkirkjan

 

Opna húsið byrjar í dag.

Verið velkomin í opna húsið kl. 13:30 í safnaðarheimili Dómkirkjunnar að Lækjargötu 14 a. Dagskráin ber yfirskriftina: Söngur, spjall og slúður. Ásta Kristjánsdóttir verður með veisluborð.

Laufey Böðvarsdóttir, 21/9 2017

Prestvígsla, sunnudagaskóli og Kolaportsmessa á sunnudaginn kemur

Prests- og djáknavígsla kl. 11. Frú Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands vígir djáknakandídat Elísabetu Gísladóttur til djáknaþjónustu á hjúkrunarheimilinu Sóltúni í Reykjavík. Einnig verður cand. theol. Sylvía Magnúsdóttir vígð til prestsþjónustu á Landspítalanum. Vígsluvottar verða sr. Kristín Pálsdóttir, sr, Sveinn Valgeirsson, sr. Bragi Skúlason, Ragnheiður Sverrisdóttir djákni. Kári Þormar leikur á orgelið og Dómkórinn syngur.

Sunnudagaskóli milli kl. 11 og 12 á kirkjuloftinu. Öll börn velkomin í fylgd með fullorðnum.

Messa kl. 14 í Kolaportinu. Sr. Sveinn þjónar ásamt Þorvaldi Halldórssyni og fleirum.

Minnum á bílastæðin aftan við Alþingishúsið. Allir velkomnir!

Laufey Böðvarsdóttir, 20/9 2017

Kæru vinir, hún Ásta okkar verður með veisluborð á fimmtudaginn, þegar Opna húsið byrjar aftur eftir sumarfrí. Opna húsið byrjar fimmtudaginn 21. september kl. 13.30 í Safnaðarheimilinu Lækjargötu 14a. Dagskrá: 21. sept. Söngur, spjall og slúður. Vinafundur. 28. september Haustferð. Farið í Hafnarfjörð og Álftanes. 5. október Nýi dómkirkjupresturinn 12. október Unnur Halldórsdóttir fer með gamanmál og kvæði. 19. október Lísbet Guðmundsdóttir, Skálinn við Lækjargötu 26. október Rósa Jóhannesdóttir og fjölskylda syngja og leika 2. nóvember Kaffihúsastemning við Tjörnina. 9. nóvember Ármann Reynisson skáld 16. nóvember Hrólfur Jónsson spilar og syngur eigin lög. 23. nóvember Karl Sigurbjörnsson, biskup. Myndin af Jesú 30. nóvember Aðventustund, heitt súkkulaði og kræsingar. Á morgun, þriðjudag er bæna-og kyrrðarstund í hádeginu og samvera og léttur hádegisverður. Þriðjudags Bachtónleikar Ólafs Elíassonar eru kl. 20.30 annað kvöld. Allir hjartanlega velkomnir

IMG_1772

Laufey Böðvarsdóttir, 18/9 2017

Þessi bráðskemmtilegu ungu menn verða með sunnudagaskólann á kirkjuloftinu á sunnudaginn kl. 11. Fræðandi og skemmtilegt starf. Velkomin til messu þar sem Karl Sigurbjörnsson, biskup prédikar, Dómkórinn og Kári leikur á orgelið. Ólöf Sesselja verður meðhjálpari. Bílastæði við Alþingishúsið. Hlökkum til að sjá ykkur. Nú byrja æðruleysismessuurnar aftur eftir sumarfrí, 17. september kl. 20 Kæru fjölskylda, vinir og félagar nú hefjast Æðruleysismessurnar aftur. Merkið kvöldið á dagatalið og setjið áminningu í símann ;) Gefum okkur tækifæri á að nærast í dagsins önn, kyrrum hugann, róum taugarnar, hvílum lúin bein, dveljum í nærveru heilags anda og njótum samfélags. Hlustum á félaga deila reynslu sinni, heyrum hugleiðingu, syngjum og biðjum saman á sunnudaginn 17. Sept kl. 20:00 í Dómkirkjunni :D Díana Ósk mun leiða stundina, Sr. Fritz Már mun flytja hugleiðingu, Sr. Sveinn mun leiða bænina og Ástvaldur mun stýra tónlistinni. Deilið þessu til sem flestra svo fleiri fái tækifæri til þess að njóta stundarinnar.

 

 

 

IMG_4549

Laufey Böðvarsdóttir, 15/9 2017

Messa 17. september kl. 11

Hr. Karl Sigurbjörnsson biskup prédikar og þjónar fyrir altari. Kári Þormar leikur á orgel og félagar úr Dómkórnum leiða sönginn. Næg bílastæði aftan við Alþingishúsið. Allir velkomnir!

Laufey Böðvarsdóttir, 13/9 2017

Kæru vinir, nú er komið að því! Næstkomandi sunnudag 17.sept. kl.20.00 verður æðruleysismessa í Dómkirkjunni. Njótum þess að kyrra hugann og eiga saman frábært samfélag. Félagi deilir reynslu sinni. Díana Ósk leiðir stundina, sr.Fritz Már flytur hugvekju, sr.Sveinn leiðir okkur í bæn og Ástvaldur nærir okkur með dásamlegri tónlist. Sjáumst á sunnudag

Laufey Böðvarsdóttir, 12/9 2017

Í gær var haldin kyrrðarstund í Dómkirkjunni til að heiðra minningu þeirra sem fallið hafa fyrir eigin hendi, en 10. september er alþjóðlegur forvarnardagur sjálfsvíga.

IMG_3343

Laufey Böðvarsdóttir, 11/9 2017

Minni á að bæna-og kyrrðarstundin í hádeginu á morgun, þriðjudag verður í Safnaðarheimilinu, Lækjargötu 14a. Góður hádegisverður eftir stundina. Sunnudaginn 17. september mun Karl Sigurbjörnsson, biskup prédika og þjóna við messu kl. 11. Verið hjartanlega velkomin.

IMG_3837

Laufey Böðvarsdóttir, 11/9 2017

Hlökkum til að sjá ykkur í messunni á sunnudaginn kl. 11. Karl Sigurbjörnsson biskup prédikar og sunnudagaskólinn verður á kirkjuloftinu í umsjón Óla og Sigga. Bæna-og kyrrðarstundin á þriðjudaginn verður í safnaðarheimilinu þar sem kirkjan er upptekin. Fimmtudaginn 21. september verða fagnaðarfundir þegar Opna húsið byrjar aftur eftir sumarfrí, veislukaffið hennar Ástu og skemmtileg samvera. Kirkjunefnd kvenna og prjónakvöldin byrja í október og verða nánar auglýst. Verið velkomin í gott starf Dómkirkjunnar.

IMG_3820

Laufey Böðvarsdóttir, 8/9 2017

Fyrsti miðvikudagstíminn í fermingarfræðslunni er miðvikudaginn 13. september kl. 16 í safnaðarheimilinu, Lækjargötu 14a. Í beinu framhaldi er Ungdóm, æskulýðsfélagið okkar með skemmtilega samveru sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir heldur utan um það með prestunum okkar. Hlökkum að sjá ykkur. Enn er hægt að skrá sig í fermingarfræðsluna á netfangið kirkjan@domkirkjan.is

IMG_3836

Laufey Böðvarsdóttir, 8/9 2017

Kirkjan er opin alla virka daga frá 10-14

Viðtalstímar presta eru í safnaðarheimilnu
Lækjargötu 14a,
þri-fös 11-12 og eftir samkomulagi.
Sími: 520-9700.

Skráning í fermingarfræðslu

Fimmtudagur

- 13.00- 14.30 Opna húsið í safnaðarheimilinu, samvera, fræðsla og gott með kaffinu. Yfir vetrarmánuðina.
Tíðasöngur kl. 17.00 yfir vetrarmánuðina.
21.00 AA fundur

Dagskrá ...