Til að skrá barn til fermingarfræðslu veturinn 2009-2010 skal senda eftirfarandi upplýsingar á netfangið: domkirkjan@domkirkjan.is
Fullt nafn:
Fæðingardagur (kt.)
Fæðingarstaður:
Heimili:
Heimasími:
Farsími foreldra:
Farsími barna (ef til):
Netfang fermingarbarns:
Netföng foreldra:
Skírnardagur og – staður:
Nöfn móður og föður, kennitala og heimilisfang:
Fermingardagur: Pálmasunnudagur/Skírdagur/Hvítasunna:____
Vinsamlegast útvegið skírnarvottorð ef ekki var skírt í Dómkirkjunni.
Hjartanlega velkomin í fermingarhóp Dómkirkjunnar!
Fermingarveturinn er tími fjölskyldunnar. Við leggjum áherslu á það í Dómkirkjunni að fjölskyldan taki þátt í helgihaldi kirkjunnar á fermingarvetri barnsins.
Á fermingarvetri er tækifæri til að sameinast um hið heilaga, læra, biðja og eiga samfélag í kirkjunni og upplifa hátíðir hennar á sérstakan máta. Við hvetjum ykkur fjölskylduna því til þátttöku.
Með því að koma með foreldrum eða forráðamönnum sínum til helgihaldsins læra fermingarbörnin betur að njóta þátttöku í starfi kirkjunnar.
Fermingarfræðslan hefst með messu og fundi prestanna með fermingarbörnum og foreldrum sunnudaginn 6. september kl. 11 í Dómkirkjunni.
Fræðslutímar verða síðan á miðvikudögum kl. 15:40-17:00. Fræðslan fer fram í Safnaðarheimili Dómkirkjunnar við Lækjargötu 14a. Fermingarbarnaferð verður farin í Vatnaskóg dagana 18.-19. september.
Fræðslufundir og samverur fermingarbarna og foreldra verða einnig á dagskránni. Kvöldkirkjubíó verður einu sinni í mánuði yfir háveturinn. Æskulýðsstarfið verður einnig á sínum stað með viðburðum, samverum og ferðum.
Vinsamlegast skilið skráningarblaðinu vandlega útfylltu inn til okkar sem fyrst eða skráið þátttökuna rafrænt með tölvupósti á netfangið domkirkjan@domkirkjan.is .
Ef þið hafið spurningar hringið þá í kirkjuna í síma 520-9700 eða hafið samband við undirrituð.
Með góðri kveðju og blessunaróskum,
Sr. Hjálmar Jónsson hjalmar@domkirkjan.is
Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir annasigridur@domkirkjan.is Sr. Þorvaldur Víðisson thorvaldur@domkirkjan.is
Öll börn eða unglingar á aldrinum 1-18 ára ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í Dómkirkjunni. Skoða: Barna og unglingavefinn.
Dómkórinn leiðir safnaðarsöng í messum og stendur fyrir Tónlistardögum Dómkirkjunnar á hverju hausti og tónleikum á jólum. Dómkórinn syngur að auki við ýmis tækifæri. Meira um Dómkórinn

