Kvöldkirkjan er opin frá kl. 20:00 til kl. 22:00 á fimmtudagskvöldum.
Hún er ætluð til þess að veita fólki skjól, athvarf og kyrrð. Hún skal vera farvegur til að nálgast Guð á nýjan hátt. Fólk kemur inn í kyrrð kirkjunnar til að eiga stund með sjálfu sér og Guði sínum. Fólk kemur og fer, stansar í 5 mínútur eða hálftíma, allt eftir eigin ósk og vilja.
Bænastund kl. 20:30 Bænastund kl. 21:30
Við púlt í kirkjunni er hægt að nema staðar og skrifa bænarefni sín sem svo eru flutt á bænastundinni. Við annað púlt er hægt að skrifa niður hugsanir sínar, gullkorn eða lífsmottó og deila þannig hugsun sinni með öðrum.
Öll börn eða unglingar á aldrinum 1-18 ára ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í Dómkirkjunni. Skoða: Barna og unglingavefinn.
Dómkórinn leiðir safnaðarsöng í messum og stendur fyrir Tónlistardögum Dómkirkjunnar á hverju hausti og tónleikum á jólum. Dómkórinn syngur að auki við ýmis tækifæri. Meira um Dómkórinn

