Dagskrá Tónlistardaga 2009


Auk Dómkórsins koma fram kórar, söngvarar og hljóðfæraleikar til að heiðra Martein H. Friðriksson sem varð sjötugur 24. apríl s.l.

Tekið skal fram að Tónlistardagar Dómkirkjunnar í ár verða þeir síðustu undir stjórn Marteins.

 

Laugardagur 17. október kl. 17:00

Tónleikar í Dómkirkjunni

Kór Neskirkju kemur í heimsókn 
stjórnandi: Steingrímur Þórhallsson

Tónleikarnir eru afmælisgjöf til Marteins, þar sem frumflutt verður m.a. kórverk eftir kórstjórann.

Hallveig Rúnarsdóttir syngur einsöng og Pamela da Senzi leikur á flautu. 

Aðgangur ókeypis.

 

Laugardagur 24. október kl. 17:00

Tónleikar í Dómkirkjunni

Dómkórinn frumflytur kórverkið „Óttast þú eigi“ eftir Martein H. Friðriksson. 
Einnig flytja tónlist afmælisgestirnir Anna Guðný             Guðmundsdóttir, Sigrún Hjálmtýsdóttir, Sigurður Snorrason o.fl.

Aðgangur ókeypis.

 

Sunnudagur 25. október kl. 11.00:

Hátíðarmessa á kirkjuvígsludegi

Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir predikar og sr. Hjálmar Jónsson þjónar fyrir altari.

Anna Sigríður Helgadóttir syngur einsöng, Dómkórinn syngur, Marteinn H. Friðriksson leikur á orgel.

 

Sunnudagur 1. nóvember kl. 16.00 til 18.00:

Minning látinna

Kirkjugestum gefst tækifæri að líta inn í Dómkirkjuna og hlýða á kór- og orgeltónlist.

Flytjendur eru: Graduale Nobile, Kammerkór Dómkirkjunnar, Mótettukórinn, Voces masculorum, Marta Guðrún Halldórsdóttir, Örn Magnússson, Kjartan Sigurjónsson og fleiri. Sr. Hjálmar Jónsson flytur bæn.

 

Sunnudagur 8. nóvember kl. 17.00:

Tónleikar í Dómkirkjunni

Fram koma Anna Sigríður Helgadóttir, Guðný Guðmundsdóttir, Guðrún Birgisdóttir, Gunnar Kvaran, Lenka Mátéová, Martial Nardeau, Skólakór Kársness undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur og fleiri afmælisgestir. 

Aðgangur ókeypis.

 

Sunnudagur 15. nóvember kl. 17.00:

Dómkórinn í Hallgrímskirkju

Flutt verður Messa í D eftir Antonin Dvorák fyrir einsöng, kór og orgel og einnig „Fest- und  Gedenksprüche“ eftir Johannes Brahms.

Flytjendur: Þóra Einarsdóttir, Sesselja Kristjánsdóttir Gissur Páll Gissurarson, Águst Ólafsson, Guðný Einarsdóttir og Dómkórinn. 
Stjórnandi: Marteinn H. Friðriksson

Aðgangur: 1.500 kr.

 

Laugardagur 21. nóvember kl. 17.00:

Tónleikar í Dómkirkjunni

í umsjón Kjartans Óskarssonar

Auk Kjartans koma fram Bergþór Pálsson, Sesselja Kristjánsdóttir, Steingrímur Þórhallson og fleiri afmælisgestir.                           

 Aðgangur ókeypis

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Sunnudaginn, 12. september:
Kl. 11 messa sr. Anna Sigríður Pálsdóttir prédikar
Skoða alla dagskrá

Öll börn eða unglingar á aldrinum 1-18 ára ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í Dómkirkjunni. Skoða: Barna og unglingavefinn.


Dómkórinn leiðir safnaðarsöng í messum og stendur fyrir Tónlistardögum Dómkirkjunnar á hverju hausti og tónleikum á jólum. Dómkórinn syngur að auki við ýmis tækifæri. Meira um Dómkórinn