Um Tónlistardaga 2008


Nýtt kórverk eftir Huga Guðmundsson frumflutt

Allt frá árinu 1982 hafa Tónlistardagar Dómkirkjunnar verið fastur liður í menningarlífi Reykjavíkur á haustdögum. Það er Dómkórinn og stjórnandi hans, Marteinn H. Friðriksson dómorganisti, sem standa að röð tónleika þar sem meðal annars er frumflutt verk eftir tónskáld sem fengið hefur verið til að semja verk sérstaklega fyrir Tónlistardagana, oftast kórverk fyrir Dómkórinn, en þess eru einnig dæmi að samin hafi verið orgelverk.

Að þessu sinni hefjast Tónlistardagarnir með hefðbundnum hætti með tónleikum í Dómkirkjunni laugardaginn 25. október kl. 17. Þar frumflytur Dómkórinn kórverkið Aeterna lux divinitas eftir gest Tónlistardaganna, Huga Guðmundsson tónskáld, en auk þess verður flutt kór-, einsöngs- og orgeltónlist eftir tékkneska tónskáldið Petr Eben, sem lést fyrr á þessu ári, en hann samdi á sínum tíma verk fyrir Dómkórinn. Auk Dómkórsins og Marteins tekur Anna Sigríður Helgadóttir altsöngkona þátt í tónleikunum.

Daginn eftir, sunnudaginn 26. október, verður verk Huga endurflutt í hátíðarmessu á kirkjuvígsludegi Dómkirkjunnar en henni er að vanda útvarpað á Rás 1 í Ríkisútvarpinu.

Laugardaginn 1. nóvember kl. 17 verða svo orgeltónleikar í Dómkirkjunni þar sem Magnús Ragnarsson organisti í Áskirkju leikur í boði Dómkórsins.

Sunnudaginn 9. nóvember kl. 17 er komið að tónleikum sem haldnir verða í Dómkirkjunni til heiðurs nokkrum íslenskum tónskáldum sem eiga stórafmæli á þessu ári. Þar verður flutt tónlist eftir Jórunni Viðar, Jón Ásgeirsson, Pál Pampichler Pálsson, Atla Heimi Sveinsson og Þorkel Sigurbjörnsson. Flytjendur eru auk Dómkórsins Bergþór Pálsson bariton, Steingrímur Þórhallsson organisti og Stúlknakór Kársnesskóla undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur.

Rúsínan í pylsuenda Tónlistardaganna verður svo flutningur Dómkórsins á þremur fyrstu hlutum Jólaóratoríu Jóhanns Sebastians Bach laugardaginn 6. desember, Nikulásarmessu, kl. 17 í Langholtskirkju. Flytjendur auk kórsins verða Hulda Björk Garðarsdóttir sópran, Sesselja Kristjánsdóttir alt, Eyjólfur Eyjólfsson tenór og Bergþór Pálsson bariton, auk 25 manna hljómsveitar. Stjórnandi verður Marteinn H. Friðriksson.

Nánari upplýsingar veitir Marteinn H. Friðriksson í síma 864-3643

Um Huga Guðmundsson

Um Jólaóratoríu Bachs

Dagskrá Tónlistardaga 2008

Fróðleikur um Tónlistardaga Dómkirkjunnar


 

 

 

 

 

 

Á morgun: Sunnudaginn, 5. september:
Kl. 11 fjölskyldumessa sr. Þorvaldur Víðisson prédikar.Fermingarbörn taka þátt í messunni
Skoða alla dagskrá

Öll börn eða unglingar á aldrinum 1-18 ára ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í Dómkirkjunni. Skoða: Barna og unglingavefinn.


Dómkórinn leiðir safnaðarsöng í messum og stendur fyrir Tónlistardögum Dómkirkjunnar á hverju hausti og tónleikum á jólum. Dómkórinn syngur að auki við ýmis tækifæri. Meira um Dómkórinn