Kvöldkirkjan
Kvöldkirkja Dómkirkjunnar er opin öll fimmtudagskvöld kl. 20-22. Bænastund er kl. 20:30. Eftir að bænastundinni lýkur sér hópur ungmenna frá Kristilegum skólasamtökum um dagskrá til kl. 22.00. Sjálfboðaliðar, prestar og starfsfólk annast dagskrá og þjónustu. Hægt er að fá viðtal við prest, óska fyrirbæna, tendra bænaljós og njóta kyrrðarinnar. Kvöldkirkjan hefur verið starfrækt frá 1. desember 2006 og er fyrirmyndin fengin frá Vor Fruar kirkjunni í Kaupmannahöfn. Þeir sem vilja gerast sjálfboðaliðar mega gjarnan hafa samband.